|
|||
![]() |
|||
2017-11-01 18:59:04 CET 2017-11-01 19:00:05 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á þremur markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 4.880 m. kr. og fjöldi tilboða var 27. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 25 bárust 15 tilboð að nafnvirði samtals 3.380 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,55% - 2,63%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 25 að fjárhæð 3.160 m.kr. á 2,60% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 23.080 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust 7 tilboð að nafnvirði samtals 640 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,41%–5,49%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 220 m.kr. á 5,42% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 23.660 m.kr. eftir útgáfuna. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 19 bárust 5 tilboð að nafnvirði samtals 860 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,08% - 5,15%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 19 að fjárhæð 200 m.kr. á 5,08% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 2.740 m.kr. eftir útgáfuna. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem hafa verið til viðskipta á Nasdaq Ísland. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Ísland þann 8 nóvember 2017. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 91.920 m. kr. og þar af 29.920 m. kr á þessu ári. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka haraldur.eidsson@arionbanki.is s: 856-7108. |
|||
|