|
|||
2010-06-22 17:34:52 CEST 2010-06-22 17:35:52 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414Föstudaginn 25. júní kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í RIKS 21 0414. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 30. júní 2010. |
|||
|