|
|||
2016-08-04 16:32:54 CEST 2016-08-04 16:32:54 CEST REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirStandard & Poor‘s staðfestir lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar og hækkar grunneinkunn í bb-Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s hefur staðfest lánshæfiseinkunnir Landsvirkjunar BBB-/A-3. Einkunnirnar eiga við langtíma- og skammtímaskuldir með og án ríkisábyrgðar. Samhliða hefur Standard & Poor‘s hækkað grunneinkunn (SACP) fyrirtækisins í bb- úr b+. Breytt einkunn endurspeglar stöðugt sterkari fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og þá sérstaklega árangur í lækkun skulda. Horfur eru stöðugar. Reykjavík, 4. ágúst 2016 Nánari upplýsingar veitir Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs, í síma 515 9000, netfang: Magnus.Thor.Gylfason@landsvirkjun.is |
|||
|