2024-05-08 19:21:00 CEST

2024-05-08 19:21:02 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Arion Bank hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Arion banki: Áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar


Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 4. apríl 2024 um framkvæmd endurkaupaáætlunar á Íslandi og í Svíþjóð. Bankinn hefur nú ákveðið að fullnýta heimild Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands sem jafnframt hefur verið samþykkt af stjórn bankans. Hækkar því hámarksfjárhæð endurkaupanna úr 2,5 milljörðum í 5,0 milljarða króna.

Hámarksfjöldi hluta sem endurkaupaáætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði kr. 36.500.000 hlutir. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en sem nemur kr. 5.000.000.000 en bankinn hefur nú þegar keypt 17.124.178 hluti á Íslandi og 184.509 heimildarskírteini í Svíþjóð að andvirði samtals 2.476.516.586 króna undir umsjón Landsbankans hf. Uppfærð skipting endurkaupa milli Íslands og Svíþjóðar er þannig að endurkaup verða að hámarki 4.950.000.000 kr. á Íslandi og 50.000.000 kr. í Svíþjóð (samtals 5 milljarðar króna) eða allt að 36.135.00 hlutir og allt að 365.000 heimildarskírteini (samtals 2,5% af útgefnu hlutafé bankans).

Landsbankinn hf. mun áfram hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar á Íslandi og í Svíþjóð. Mun Landsbankinn taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð og án áhrifa frá Arion banka hf. Áætlunin heldur því áfram á báðum mörkuðum og gildir til 31. desember 2024. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á þessu tímabili.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður þannig háttað að kaup hvers dags í kauphöll Nasdaq Ísland og Nasdaq Stokkhólmi verða að hámarki 25% af meðaldagsveltu með hlutabréf eða heimildarskírteini bankans á undangengnum 20 viðskiptadögum áður en kaup gerast.

Í kauphöll Nasdaq Stokkhólmi mega kaup aðeins eiga sér stað innan þess verðbils sem gildir á Nasdaq Stokkhólmi, þar sem verðbilið nær frá hæsta kaupverði (e. best bid) til lægsta söluverðs (e. best offer) sem í gildi er og tekið saman hjá Nasdaq Stokkhólmi, í samræmi kafla H í viðbæti D við Reglubók fyrir útgefendur hlutafjár á aðalmörkuðum Nasdaq Nordic sem tók gildi þann 1. janúar 2024.

Í kauphöll Nasdaq á Íslandi skal verð fyrir hvern hlut að hámarki samsvara hæsta verði í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Ísland, hvort sem hærra er, allt í samræmi við ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem lagagildi hefur á Íslandi.

Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 320/2022 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.