|
|||
2009-04-14 15:11:23 CEST 2009-04-14 15:12:30 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning varðandi skuldbindingar Sparisjóðs MýrasýsluÞann 27. mars síðastliðinn samþykktu stærstu lánardrottnar Sparisjóðs Mýrasýslu („SPM“) tillögu að fjárhagslegri endurskipulagningu sjóðsins samanber tilkynningu til Kauphallar 6. apríl 2009. Samhliða því voru eignir SPM seldar til Nýja Kaupþings banka hf. („Nýi Kaupþing“) sem mun greiða fyrir eignirnar með skuldabréfum og hlutabréfum útgefnum af Nýja Kaupþingi. SPM er útgefandi af nokkrum skuldabréfaflokkum sem skráðir eru í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX). Í ljósi stöðunnar mun SPM ekki greiða afborganir né vexti af þeim flokkum sem til gjalddaga kunna að koma á því tímabili sem áframhaldandi viðræður við innlenda sem erlenda lánardrottna um uppgjör krafna standa yfir, þ.m.t. á flokki SPM 05 01 sem er á gjalddaga þann 15. apríl 2009. |
|||
|