|
|||
2014-09-09 18:05:46 CEST 2014-09-09 18:06:47 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirÁframhaldandi vöxtur í millilandaflugi Icelandair Group árið 2015-- Áætluð fjölgun farþega um 300 þúsund milli ára -- Beint flug til 39 áfangastaða -- 12% aukning flugs milli ára -- Daglegt flug allt árið til 9 borga: Seattle, Boston, New York, Osló, Stokkhólms, Kaupmannahafnar, London, Amsterdam og París. -- Birmingham og Portland, Oregon nýir áfangastaðir Flugáætlun millilandaflugs Icelandair Group fyrir árið 2015 verður sú stærsta í sögu félagsins og um 12% umfangsmeiri en gert er ráð fyrir á þessu ári. Flug verður hafið til tveggja nýrra áfangastaða og ferðum fjölgað til ýmissa borga í Norður-Ameríku og Evrópu. Gert er ráð fyrir að farþegar verði um 2,9 milljónir á árinu 2015, en áætlað er að þeir verði um 2,6 milljónir á yfirstandandi ári. Alls verða 23 Boeing 757 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, tveimur fleiri en á þessu ári. Leiðakerfi félagsins hefur meira en tvöfaldast að umfangi frá árinu 2009 og verða ferðir frá landinu um 10 þúsund á næsta ári en voru um 4.500 fyrir sex árum. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir eða 45% þess fjölda sem gert er ráð fyrir á árinu 2015. Þessi vöxtur mun hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi Ferðum mun fjölga næsta sumar til flestra áfangastaða. Þannig verður bætt við 12 flugum vikulega bæði til Norður-Ameríku og Evrópu eða í heild 24 flugum og farið úr 254 brottförum frá Keflavíkurflugvelli á viku og í 278 brottfarir yfir háönnina næsta sumar. Portland, Oregon og Birmingham bætast við sem nýir áfangastaðir en ekki verður framhald á flugi til St. Pétursborgar. Sem dæmi um það hvernig leiðakerfi félagsins er að þéttast og styrkjast með þessum breytingum má nefna að nú verður flogið allt árið til sjö borga í Norður-Ameríku, en til fjögurra fyrir tveimur árum. Þá er nú flogið daglega allt árið til sex Evrópuborga og hafa Amsterdam og París bæst við á síðustu tveimur árum. Leiðakerfi félagsins hefur einkum byggt á tengingum á Keflavíkurflugvelli með morgunbrottförum til Evrópuborga og síðdegisflugi til Norður-Ameríku. Undanfarin ár hefur félagið verið að byggja upp annan tengibanka, með brottförum laust fyrir hádegi. Í dag eru tvær daglegar brottfarir í þeim tengibanka til Norður-Ameríku og fjórar brottfarir til Evrópuborga. Þriðja daglega brottförin til Norður-Ameríku bætist nú við og fimmta brottförin til Evrópu. Stækkunin á þessum tengibanka gefur möguleika á tveimur mismunandi brottfarartímum innan sama dags á áfangastaði, dreifir álagi á Keflavíkurflugvelli og styður vel við aðal tengibankann. Félagið mun hefja áætlunarflug til og frá Portland í Oregonfylki á vesturströnd Bandaríkjanna 19. maí 2015. Íbúafjöldi á Portland svæðinu nemur um 2,3 milljónum íbúa. Portland verður 14. áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku. Flogið verður tvisvar í viku á þriðjudögum og fimmtudögum til 20 október. Áður hefur verið tilkynnt um flug til Birmingham í Bretlandi sem hefst í febrúar 2015. Birmingham verður fimmti áfangastaður félagsins í Bretlandi. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudögum og mánudögum frá 5. febrúar 2015. Frekari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801 |
|||
|