2024-07-04 14:03:45 CEST

2024-07-04 14:03:45 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Kvika banki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Kvika banki hf.: Viðbótarútgáfa víkjandi skuldabréfa í flokknum KVIKA 34 1211 T2i


Kvika banki hf. hefur lokið sölu á víkjandi skuldabréfum að fjárhæð 500 m.kr. Um er að ræða viðbótarútgáfu við víkjandi skuldabréfaflokk KVIKA 34 1211 T2i, sem upphaflega var gefinn út í desember 2023 fyrir 2.000 m.kr. Stærð flokksins eftir viðbótarútgáfu verður 2.500 m.kr.  

Víkjandi skuldabréfin eru verðtryggð og bera 6,25% árlega fasta vexti. Lokagjalddagi víkjandi skuldabréfanna er 11. desember 2034 og er flokkurinn innkallanlegur af hálfu útgefanda frá og með vaxtagjalddaga þann 11. desember 2029 og á vaxtagjalddögum þar á eftir. 

Víkjandi skuldabréfin verða gefin út undir EMTN grunnlýsingu bankans og skráð í kauphöll Nasdaq Iceland. 

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku banka á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is