|
|||
2011-01-07 17:29:06 CET 2011-01-07 17:30:04 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirIcelandair Group hf. gerir samning um viðskiptavakt við LandsbankannIcelandair Group hf (ICEAIR) hefur gert samning við NBI hf (Landsbankann) um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Samningurinn tekur gildi frá og með 11. janúar og er hann ótímabundinn en uppsegjanlegur með eins mánaðar fyrirvara. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf ICEAIR í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Landsbankinn mun daglega setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í hlutafé ICEAIR, að lágmarki kr. 2.000.000 að nafnvirði á gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Breytist verð ICEAIR innan dagsins um meira en 10% er Landsbankanum heimilt að tvöfalda hámarks mun á kaup- og sölutilboðum það sem eftir er dagsins. Hámarksfjárhæð viðskipta dag hvern sem Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja skal vera kr. 80.000.000,- að markaðsvirði. |
|||
|