|
|||
![]() |
|||
2016-05-20 18:22:31 CEST 2016-05-20 18:22:31 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirSala skuldabréfa án ríkisábyrgða í eigu ríkissjóðsÍ tengslum við nauðasamninga slitabúa fallinna fjármálafyrirtækja hefur ríkissjóður m.a. fengið afhent, sem hluta af stöðugleikaframlagi, eftirfarandi skuldabréf. Flokkar Nafnverð (krónur) ARION 10 02 464.251.401 ARION CB 2 483.548.392 HVS 05 1 1.205.000.000 (241 nafnverðseining) LSS 05 2 200.000.000 Lindarhvoll ehf. fer með umsýslu og ráðstöfun ofangreindra eigna fyrir hönd ríkissjóðs. Ákveðið hefur verið að selja þessi bréf með útboðsfyrirkomulagi miðvikudaginn 25. maí 2016 og verður andvirðinu ráðstafað skv. ákvæðum til bráðabirgða III í lögum nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast kaupendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Lindarhvoll ehf. áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja tilboð sem berast, að hluta eða öllu leyti, eða hafna þeim öllum. Þeir sem uppfylla skilyrði þess að teljast fjármálafyrirtæki skv. lögum um fjármálafyrirtæki geta gert tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Tilboð skulu sendast til Seðlabanka Íslands á tölvupóstfangið lindarhvoll@sedlabanki.is milli kl. 10:00 og 10:30, miðvikudaginn 25. maí 2016. Tilboð skulu sett fram í verðum, með þremur aukastöfum. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Niðurstaðan verður birt kl. 15.00, fimmtudaginn 26. maí 2016. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 30. maí 2016. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, forstöðumaður hjá Lánamálum ríkisins í síma 569 9633. |
|||
|