2016-02-09 16:31:01 CET

2016-02-09 16:31:01 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Enska Íslenska
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð ríkisvíxla RIKV 16 0517 OG RIKV 16 0815


Fimmtudaginn 11. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 16 0517 og RIKV 16 0815 sem eru með gjalddaga 17.
maí og 15. ágúst 2016. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 15. febrúar 2016.

Sótt verður um að RIKV 16 0815 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ á Íslandi
mánudaginn 15. febrúar 2016. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.