2008-07-18 11:25:39 CEST

2008-07-18 11:26:40 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

- Nýr lánaflokkur hjá Íbúðalánasjóði


Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð um nýjan lánaflokk
sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi
að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði
í íbúðarhúsnæði. Allt að 30 milljörðum verður varið í þessum lánaflokki í formi
íbúðabréfa, sem eingöngu verða notuð í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka
Íslands. 

Jafnframt mun félags- og tryggingamálaráðherra leggja fram á Alþingi í byrjun
september n.k. frumvarp þar sem lagt verður til að Íbúðalánasjóði verði veitt
heimild til að fjármagna og kaupa ný íbúðalán af fjármálafyrirtækjum. Verði
frumvarpið að lögum er áætlað að verja til þessa allt að 30 milljörðum króna á
þessu og næsta ári. Þessar lagabreytingar yrðu óháðar heildarskoðun laga um
húsnæðismál, sem jafnframt er fyrirhuguð á komandi löggjafarþingi sem hefst í
október. 

Fréttatilkynninguna má nálgast í meðfylgjandi skjali.

fréttatilkynning.pdf