2011-01-14 17:35:10 CET

2011-01-14 17:36:09 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Icelandair Group hf.- Sigþór Einarsson lætur af störfum sem aðstoðarforstjóri



Sigþór Einarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarforstjóri
Icelandair Group. Hann hyggst snúa sér að flugvélaviðskiptum, m.a. í samvinnu
við Icelandair Group. Jafnframt mun hann áfram verða félaginu til ráðgjafar á
öðrum sviðum. "Ég hef átt 15 ómetanleg ár hjá Icelandair Group og forverum þess. Ég hef um
nokkuð skeið ætlað mér að skipta um vettvang, og finnst vel til fallið að gera
það nú þegar Icelandair Group stendur á tímamótum. Erfiðu
endurskipulagningarferli er lokið og rekstur stendur traustum fótum. Félagið
hefur á að skipa framúrskarandi starfsliði og stjórnendateymi, sem mun halda
áfram að vinna stóra sigra á komandi árum."