|
|||
![]() |
|||
2010-03-19 15:08:58 CET 2010-03-19 15:09:58 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurÁrsreikningur Orkuveitu Reykjavíkur 2009Verulegur viðsnúningur varð í afkomu Orkuveitu Reykjavíkur á síðasta fjórðungi ársins 2009, eins og fram kemur í ársreikningi fyrirtækisins, sem samþykktur var í dag. Hagnaður af rekstrinum síðustu þrjá mánuði ársins nam um 8,8 milljörðum króna. Hagstæð þróun álverðs veldur þar miklu. Rekstrarhagnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, árið 2009 var 13,0 milljarðar króna. Að teknu tilliti til þeirra þátta nemur halli af rekstrinum 2,5 milljörðum króna og ræðst það að mestu af 7,6% veikingu íslensku krónunnar frá upphafi til loka árs. Á árinu 2008 varð halli að fjárhæð 73,0 milljarðar króna af rekstrinum. Vaxandi tekjur fyrirtækisins í erlendri mynt gera því kleift að standa undir greiðslum af erlendum lántökum þrátt fyrir miklar gengissveiflur. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla. Helstu niðurstöður ársins 2009 Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur var með 2.516 milljóna króna halla árið 2009 samanborið við 73.037 milljóna króna halla árið áður. Rekstrartekjur ársins námu 26.013 milljónum króna en voru 24.168 milljónir króna árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir, EBITDA, var 12.970 milljónir króna samanborið við 11.652 milljónir króna árið áður. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 8.843 milljónir króna á árinu, en voru neikvæðir um 92.523 milljónir króna árið 2008. Heildareignir þann 31. desember 2009 voru 281.526 milljónir króna en voru 259.373 milljónir króna 31. desember 2008. Eigið fé þann 31. desember 2009 var 40.657 milljónir króna en var 48.359 milljónir króna 31. desember 2008. Heildarskuldir fyrirtækisins þann 31. desember 2009 voru 240.868 milljónir króna samanborið við 211.015 milljónir króna í árslok 2008. Eiginfjárhlutfall var 14,4% þann 31. desember 2009 en var 18,6% í árslok 2008. Ýmis mál Á árinu 2009 var farsællega bundinn endir á ágreining við Hafnarfjarðarbæ um eignarhluta í HS Orku. Með samkomulaginu var verulegri áhættu, sem OR stóð frammi fyrir, rutt úr vegi.. Horfur Þrátt fyrir umrót á íslenskum og erlendum fjármálamörkuðum er rekstur Orkuveitu Reykjavíkur traustur. Áfram er unnið að stækkun Hellisheiðarvirkjunar. Áformað er að taka 4. áfanga hennar, framleiðslu á heitu vatni, í notkun undir lok yfirstandandi árs og 5. áfanga virkjunarinnar, framleiðslu á 90 MW rafafls, síðla árs 2011. Þann 20. nóvember síðastliðinn samdi Orkuveita Reykjavíkur við Evrópska fjárfestingabankann um hagstæða fjármögnun helmings 5. áfangans og helming fyrirhugaðrar Hverahlíðarvirkjunar. Vegna óvissu í íslensku efnahagslífi hefur dregið úr fjárfestingum í fjárhagsáætlun Orkuveitu Reykjavíkur og gripið hefur verið til víðtækra aðhaldsaðgerða í rekstri fyrirtækisins bæði hvað varðar launagreiðslur og annan rekstrarkostnað. Gengi íslensku krónunnar var nokkuð stöðugt síðasta ársfjórðung 2009 og hefur styrkst nokkuð það sem af er árinu 2010, eða um 2,5%. Eiginfjárstaða Orkuveitu Reykjavíkur mun á næstu misserum ráðast að miklu leyti af stöðu íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum. Nánari upplýsingar veitir Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000. |
|||
|