2009-06-08 17:25:32 CEST

2009-06-08 17:26:41 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Auglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 1015


Fimmtudaginn 11. júní kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með
tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. 

Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem
berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er
heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudaginn 15. júní 2009.

Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í
eftirfarandi flokk ríkisvíxla: 

Flokkur	          Gjalddagi	Lánstími
RIKV 09 1015	  15.10.2009	4 mánuðir

Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi
þriðjudaginn 16. júní 2009. 

Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða-
og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633.