|
|||
2011-12-28 16:39:37 CET 2011-12-28 16:40:38 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÁrsáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2012-- Áætlað er að útgáfa ríkisbréfa nemi 75 ma.kr. árið 2012 -- Áætlað er að hrein útgáfa innlendra ríkisbréfa og ríkisvíxla nemi 8 ma.kr. -- Áætlað er að hrein innlend lánsfjármögnun verði neikvæð sem nemur 2 ma.kr. -- Útgáfa er fyrirhuguð á nýjum flokki 2 ára óverðtryggðra ríkisbréfa. -- Stefnt er að því að lækka stöðu ríkisvíxla um 14 ma.kr. -- Stefnt er að innborgun að fjárhæð 10 ma.kr. á skuldabréf sem gefið var út til endurfjármögnunar Seðlabanka Íslands -- Í apríl er erlend skuldabréfaútgáfa að fjárhæð 164 m. evra á gjalddaga, sem þegar er búið að endurfjármagna. Ef markaðsaðstæður á erlendum mörkuðum verða metnar slíkar mun ríkissjóður leita tækifæra til útgáfu. Lánsfjárhæð verður þá nýtt til endurfjármögnunar lána sem falla í gjalddaga á næstu árum. Nánari upplýsingar eru í viðhengi |
|||
|