|
|||
![]() |
|||
2007-12-31 10:22:50 CET 2007-12-31 10:22:50 CET REGULATED INFORMATION Icebank - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Nýr bankastjóri IcebankSamkomulag hefur orðið um að Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Icebank, láti af störfum hjá bankanum. Stjórn Icebank hefur ráðið Agnar Hansson sem nýjan bankastjóra. Agnar hefur verið framkvæmdastjóri fjárstýringar Icebank sl. tvö ár og hefur rúmlega tíu ára starfsreynslu úr fjármálageiranum. Hann starfaði m.a. að uppbyggingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins (FBA) og var fyrsti deildarforseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Agnar er fæddur 1965 og er með meistarapróf í raunvísindum og hagfræði frá Háskólanum í Árósum. Finnur hefur stýrt Icebank frá árinu 2002 og leitt bankann í gegnum mikið umbreytingaferli á undanförnum misserum. Umsvif bankans hafa vaxið verulega undir stjórn Finns. Í árslok 2001 námu heildareignir hans 54 milljörðum króna en í árslok 2007 er áætlað að heildareignir verði liðlega 200 milljarðar króna. Ennfremur hefur hlutverk bankans sem þjónustubanki sparisjóðanna verið útvíkkað, honum fengin ný verkefni m.a. á sviði fjárfestingarbankastarfsemi og fyrirtækjaráðgjafar. Þá hefur eignarhald bankans einnig breyst á síðustu vikum eins og áður hefur verið greint frá. Á þessum tímamótum þakkar bankaráð Icebank Finni fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi. Nánari upplýsingar veitir: Geirmundur Kristinsson, stjórnarformaður Icebank, í síma 421 6600. |
|||
|