|
|||
![]() |
|||
2015-08-26 18:22:47 CEST 2015-08-26 18:23:49 CEST REGULATED INFORMATION Nýherji hf. - ÁrsreikningurTekjur Nýherja aukast um 16% á fyrri árshelmingi og afkoma jákvæðNýherji hagnast um 111 mkr á fyrri árshelmingi 2015 og öll félög samstæðunnar skiluðu hagnaði Nýherji kynnti í dag uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri árshelmings 2015. Heildarhagnaður nam 69 mkr á öðrum ársfjórðungi og 111 mkr á fyrri árshelmingi. Helstu upplýsingar: -- Vöru- og þjónustusala á öðrum ársfjórðungi nam 3.386 mkr (19% tekjuvöxtur samanborið við Q2 2014) og 6.649 mkr á fyrri árshelmingi (16% tekjuvöxtur samanborið við 1H 2014) [Q2: 2014:2.853 mkr, 1H 2014: 5.712 mkr] -- Framlegð nam 830 mkr (24,5%) í Q2 og 1.638 mkr (24,6%) á fyrrir árshelmingi [Q2 2014: 749 mkr (26,3%), 1H 2014 1.502 mkr (26,3%)] -- Heildarhagnaður annars ársfjórðungs nam 69 mkr og 111 mkr á fyrri árshelmingi [Q2 2014: 69 mkr, 1H 2015: 125 mkr] -- EBITDA nam 227 mkr (6,8%) á öðrum ársfjórðungi og 452 (6,8%) á fyrri árshelmingi [Q2 2014:207 mkr (7,3%), 1H 2014: 398 (7%)] -- Jákvæð rekstrarafkoma var hjá öllum félögum samstæðunnar á fyrri helmingi ársins -- Jákvæð afkoma á sex seinustu ársfjórðungum Finnur Oddsson, forstjóri: „Við erum sátt við rekstur Nýherja og dótturfélaga á öðrum fjórðungi og það sem af er ári. Afkoma samstæðunnar á fyrri helmingi árs er yfir áætlunum og betri en á sama tímabili í fyrra. Það er ánægjulegt að sjá verulegan tekjuvöxt á milli ára, bæði í vöru- og þjónustusölu innanlands og hjá TEMPO, þar sem erlendar tekjur halda áfram að aukast hratt. Hundruð nýrra viðskiptavina bættust í ört stækkandi hóp á fjórðungnum, en í ljósi aukinna umsvifa er gert ráð fyrir að að starfsfólki TEMPO fjölgi umtalsvert á árinu. Til að styðja við frekari vöruþróun, tengslauppbyggingu og markaðsstarf erlendis, verður allt að fjórðungshlutur í TEMPO settur í söluferli í lok þriðja ársfjórðungs. Góður gangur er svo í rekstri annarra dótturfélaga Nýherja, sérstaklega í sölu á nýjum og spennandi mannauðs- og launalausnum frá Applicon á Íslandi og bankalausnum hjá Applicon í Svíþjóð.“ Rekstrarniðurstaða á fyrri árshelmingi 2015: Sjá viðhengi. |
|||
|