|
|||
![]() |
|||
2014-02-21 12:45:17 CET 2014-02-21 12:46:18 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNIÐURSTAÐA Í ÚTBOÐI ÓVERÐTRYGGÐRA RÍKISBRÉFAÚtboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 16 1013 og RIKB 20 0205 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 16 1013: Alls bárust 5 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 720 m.kr. að nafnverði. 3 tilboðum var tekið fyrir 520 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 101,350 (5,42% ávöxtunarkröfu). RIKB 20 0205: Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.120 m.kr. að nafnverði. 12 tilboðum var tekið fyrir 2.120 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 98,310 (6,60% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 25. febrúar. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 26. febrúar 2014. |
|||
|