2010-07-23 13:45:29 CEST

2010-07-23 13:46:26 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 19 0226 og RIKS 21 0414


Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKB 19 0226 og RIKS 21 0414 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 


Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 19 0226:
Alls bárust 31 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.976 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 3.576 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 118,05 (5,99%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 26 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.413 m.kr. að nafnverði. 20
tilboðum var tekið fyrir 4.313 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,45 (3,52%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 27.
júlí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 28. júlí 2010.