|
|||
2011-11-25 09:47:58 CET 2011-11-25 09:48:59 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirStandard & Poor's breytir horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum.Standard & Poor's breytir horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs. Matsfyrirtækið Standard & Poor's greindi frá því í gær, 24. nóvember 2011, að það hefði breytt horfum á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs í stöðugar úr neikvæðum. Jafnframt voru staðfestar einkunnirnar BB/B fyrir skuldbindingar í erlendri mynt og BBB-/A-3 fyrir skuldbindingar í innlendri mynt. Breyting á horfum um lánshæfismat Íbúðalánasjóðs er gerð í kjölfar breytingar á horfum um lánshæfismat ríkissjóðs Íslands í stöðugar úr neikvæðum. Sjá nánari umfjöllun í viðhengi. |
|||
|