|
|||||||||||||||
2019-06-14 16:25:05 CEST 2019-06-14 16:25:21 CEST REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Breytingar á eigin hlutum félagsSkeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ 23. viku 2019, keypti félagið 3.192.583 eigin hluti fyrir 26.179.181 kr. eins og hér segir:
Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins, sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 7. júní 2019. Kaupin eru liður í að uppfylla arðgreiðslustefnu félagsins, þ.e. að greiða árlega til hluthafa 30-50% af hagnaði í formi arðgreiðslu eða endurkaupa á hlutum. Skeljungur keypti í viku 23 samtals 3.192.583 hluti í félaginu. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 26.179.181 sem samsvarar 5,24% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur átti áður en fyrrnefnd áætlun hófst 99.504.521 hluti eða um 4,62% af heildarhlutafé félagsins. Skeljungur á nú samtals 102.697.104 hluti, eða 5,0% af heildarhlutafé félagsins. Samkvæmt endurkaupaáætluninni má heildarkaupverð ekki vera hærra en kr. 500.000.000, með þeim fyrirvara að félagið ásamt dótturfélögum þess mega mest eiga 10% hlutafjár þess. Endurkaupaáætlunin verður í gildi fram að aðalfundi félagsins 2020, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. Nánari upplýsingar veitir Benedikt Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, fjarfestar@skeljungur.is, 840-3071. Skeljungur er orkufyrirtæki sem selur vörur og þjónustu á Íslandi, í Færeyjum og á Norður-Atlantshafinu. Meginstarfsemi félagsins er innflutningur, birgðahald, sala og dreifing á eldsneyti og eldsneytistengdum vörum. Félagið starfrækir 76 eldsneytisstöðvar og 6 birgðastöðvar á Íslandi og í Færeyjum. Auk þess selur félagið áburð og og efnavörur á Íslandi og rekur verslanir og þjónustar og selur olíu til húshitunar í Færeyjum. Viðskiptavinir Skeljungs spanna frá einstaklingum til fyrirtækja, í sjávarútvegi, landbúnaði, flutningum, flugi og til verktaka. Starfsemin er rekin undir merkjunum Skeljungur, Orkan, OrkanX og Magn. Meginmarkmið Skeljungs er að að þjóna orkuþörf einstaklinga og fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við umhverfi sitt. www.skeljungur.is |
|||||||||||||||
|