|
|||
![]() |
|||
2014-03-12 11:52:48 CET 2014-03-12 11:53:48 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag sölu á LBANK CB 16, óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq OMX Iceland. Útgáfan var stækkuð um 1.500.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,40%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.920.000.000 kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins3.420.000.000 kr. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland þann 18. mars 2014 en Straumur fjárfestingabanki sinnir viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar: Fjárfestatengill: Kolbrún Guðlaugsdóttir, ir@landsbankinn.is, og í síma 410 4014. |
|||
|