2017-02-09 15:50:18 CET

2017-02-09 15:50:18 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsnet hf. - Ársreikningur

Ársreikningur Landsnets 2016


Góð staða þrátt fyrir gengistap

Helstu atriði ársreikningsins:

  -- Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) nam 49,7 milljónum USD (5.999,4
     millj.kr.)
[1]
      samanborið við 56,8 milljónir USD (6.855,9 millj.kr) árið áður. Lækkunin
     er um 7,1 milljón USD (856,5 millj.kr) á milli ára og skýrist aðallega af
     hækkun afskrifta.
  -- Tap samkvæmt rekstrarreikningi nam 13,0 milljónum USD (1.564,7 millj.kr) á
     árinu 2016 samanborið við 30,4 milljónir USD (3.669,8 millj.kr.) hagnað á
     árinu 2015.
  -- Unnið var að endurfjármögnun félagsins á árinu þar sem fjármögnun félagsins
     var að miklu leyti breytt yfir í bandaríkjadal í samræmi við nýjan
     starfrækslugjaldmiðil félagsins. Gefin voru út skuldabréf, 200 milljónir
     USD, í lokuðu skuldabréfaútboði í Bandaríkjunum í desember 2016. Greitt var
     inn á verðtryggt krónulán frá stærsta eiganda félagsins og eftirstöðum
     skuldbreytt í bandaríkjadali. Í árslok var um 80% af fjármögnun félagsins
     komin yfir í bandaríkjadali samkvæmt stefnu stjórnar.
  -- Lausafjárstaða félagsins er sterk, handbært fé í lok árs nam 18,3 milljónum
     USD (2.202,6 millj.kr.) og handbært fé frá rekstri á árinu nam 52,4
     milljónum USD (6.322,6 millj.kr.).

Í byrjun árs 2016 var starfrækslugjaldmiðli Landsnets breytt og er þetta því
fyrsta árið sem fyrirtækið er gert upp í bandarískum dal.  Fjármögnun félagsins
var að mestu leiti í íslenskum krónum og því var niðurstaða ársins Landsneti
óhagstæð vegna mikillar styrkingar krónunnar. 

Á árinu var unnið að endurfjármögnun fyrirtækisins og náðist stór áfangi í þeim
efnum í lok árs þegar fyrirtækið gaf út 200 milljónir USD skuldabréf í lokuðu
skuldabréfaútboði fyrir fagfjárfesta í Bandaríkjunum. 

Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri Landsnets segir að með breyttri fjármögnun
fyrirtækisins hafi verið dregið úr gengisáhættu og hagstæðari vaxtakjör náðust.
Með þeim breytingum sem gerðar voru á fjármögnun félagsins hefur gengisáhættan
minnkað verulega og fjármagnskostnaður fyrirtækisins lækkaður sem mun koma
neytendum til góða í framtíðinni. 

„Það er jákvætt að sjá að rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir er
góður og í takt við áætlanir. Rekstur Landsnets stendur á mjög traustum grunni
og má nær eingöngu skýra tap fyrirtækisins með styrkingu krónunnar á árinu og
áhrif þess á fjármagnskostnað.  Fyrirtækið var áður með um 80% af fjármögnun
sinni bundna í stofnlán frá stærsta eigandanum og var lánið verðtryggt í
íslenskum krónum án afborgunarheimildar til ársins 2020.  Á árinu áttu sér stað
viðræðum við lánveitendur og var stórt skref stigið þegar samningar náðust um
innborgun inn á stofnlánið og skuldbreytingu eftirstöðva þess í árslok  2016.
Breytt fjármögnun skilar okkur hagstæðari kjörum auk þess sem dregið er úr
gengisáhættu.” 

Nánar á www.landsnet.is þar sem hægt er að nálgast ársreikninginn.



Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Sigurðardóttir framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Landsnets, sími 563-9300 eða netfang gudlaugs@landsnet.is