|
|||
![]() |
|||
2008-01-24 11:53:21 CET 2008-01-24 11:53:21 CET REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir- Viðskiptavakt með hlutabréf KaupþingsLandsbanki Íslands hf. (Landsbanki) hefur hafið viðskiptavakt fyrir eigin reikning með hlutabréf Kaupþings banka hf. (Kaupþings). Samningurinn felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins. Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi: Landsbankinn skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Kaupþings banka hf. að lágmarki 40.000 hlutir (hver hlutur er 10,0 kr. að nafnverði) og skulu tilboð vera á því gengi sem Landsbankinn ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Landsbankinn skuldbindur sig til að vera þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði. Landsbankinn hóf viðskiptavaktina þann 21. janúar 2008. |
|||
|