|
|||
2013-11-20 09:37:54 CET 2013-11-20 09:38:55 CET REGULATED INFORMATION Eimskipafélag Íslands hf. - ÁrsreikningurEimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2013Kynningarfundur 22. nóvember 2013 Eimskipafélag Íslands hf. birtir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2013 eftir lokun markaða fimmtudaginn 21. nóvember 2013. Eimskip býður fjárfestum og markaðsaðilum til fundar þar sem Gylfi Sigfússon, forstjóri, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, munu kynna uppgjör þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða 2013. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 22. nóvember 2013 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2 í Reykjavík og hefst kl. 8:30. Boðið verður uppá morgunverð frá kl. 8:15. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast eftir fundinn á fjárfestasíðu Eimskips, www.eimskip.is/investors. |
|||
|