|
|||
2012-05-11 13:45:00 CEST 2012-05-11 13:45:03 CEST REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0815 OG RIKV 12 1115Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0815 og RIKV 12 1115 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0815: Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.150 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 11.000 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,200 (flatir vextir 3,16%). RIKV 12 1115: Alls bárust 12 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.950 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 9.800 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,440 (flatir vextir 3,10%). |
|||
|