|
|||
2013-11-15 11:50:43 CET 2013-11-15 11:51:46 CET REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurPrýðileg rekstrarafkoma OrkuveitunnarRekstrarkostnaður stöðugur og svipaður að krónutölu nú og 2009 | Rekstrarhagnaður Orkuveitunnar (EBIT) 12,8 milljarðar fyrstu níu mánuði ársins | Vaxtaberandi skuldir lækkað um 24,1 milljarð það sem af er ári en bagginn enn þungur Reykjavík, 2013-11-15 11:50 CET (GLOBE NEWSWIRE) -- Sparnaður í rekstri Orkuveitunnar skilar fyrirtækinu stöðugt batnandi afkomu. Raunkostnaður við reksturinn hefur lækkað um 1,6 milljarð króna frá árinu 2009 og í krónum talið nánast staðið í stað. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) fyrstu níu mánuði ársins 2013 nam 12,8 milljörðum króna en var 11,0 milljarðar á sama tímabili 2012. Tekist hefur að greiða niður vaxtaberandi skuldir um 24,1 milljarð á árinu og Planið frá 2011 skilar mun betri sjóðstöðu en áætlað var. Árshlutauppgjör samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt af stjórn í dag. Það er gert í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS. Vaxandi framlegð Framlegð reksturs samstæðu Orkuveitunnar (EBITDA) fyrstu níu mánuði ársins nam 19,0 milljörðum króna en var 17,8 milljarðar á sama tímabili 2012. Ytri áhrifaþættir á afkomu fyrirtækisins - gengi, álverð og vaxtastig - hafa þróast hver með sínum hætti. Gengisþróun hefur verið hagstæð fyrir Orkuveituna en álverð er mjög lágt og hefur það neikvæð áhrif á fjármagnsliði uppgjörsins. Hagnaður fyrstu níu mánuði ársins 2013 eftir skatta nam 6,0 milljörðum króna. Planið þegar skilað 40 milljörðum af ráðgerðum 51 Heildarárangur Plansins frá upphafi, í mars 2011, til septemberloka 2013 nam 35,3 milljörðum króna. Allir þættir þessu voru þá á áætlun nema sala eigna. Síðan þá hefur verið gengið frá sölu á höfuðstöðvum Orkuveitunnar fyrir 5,1 milljarð. Með þeim viðskiptum hefur Planið þegar skilað 40,4 milljörðum króna af þeim 51,3 sem það á að skila í bættu sjóðstreymi í heild til ársloka 2016. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar: Rekstur Orkuveitunnar er í góðu horfi og fjárhagurinn á réttri leið. Aðgangur almennings að rafmagni, heitu vatni og köldu og traustri fráveitu á sanngjörnu verði er alltaf í forgangi. Í Planinu, sem við höfum unnið eftir frá 2011, settum við okkur metnaðarfull markmið, sem almennt var talið að erfitt yrði að ná. Með árangrinum af þessu samstillta átaki hefur starfsfólk fyrirtækisins, stjórn þess, eigendur og viðskiptavinir staðið undir þessari áskorun. Það er mikilvægt að við lögskipaða uppskiptingu fyrirtækisins nú um áramótin höldum við skarpri sýn á markmið Plansins. Framundan eru spennandi tímar þar sem Orkuveitan mun birtast viðskiptavinum með breyttum hætti. Hún mun láta til sín taka á harðnandi samkeppnismarkaði raforkusölu en gætir þess að missa ekki sjónar af almannaþjónustunni sem Orkuveitunni er trúað fyrir. Rekstraryfirlit stjórnenda Allar fjárhæðir eru í milljónum króna á verðlagi hvers árs. Rekstur fyrstu níu mánuði árs 2009 2010 2011 2012 2013 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 17.960 19.444 24.388 27.286 28.806 -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarkostnaður (9.434) (9.557) (8.910) (9.449) (9.794) -------------------------------------------------------------------------------- EBITDA 8.526 9.886 15.478 17.838 19.012 -------------------------------------------------------------------------------- Afskriftir (6.979) (5.936) (6.178) (6.862) (6.251) -------------------------------------------------------------------------------- Rekstrarhagnaður EBIT 1.546 3.950 9.300 10.976 12.762 -------------------------------------------------------------------------------- Innleystar fjármunat. og (3.594) (1.020) (917) (2.781) (3.361) (fjármagnsgj.) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir óinnleysta (2.047) 2.930 8.383 8.195 9.401 fjármagnsliði -------------------------------------------------------------------------------- Óinnleystir fjármagnsliðir (11.546) 19.439 (16.246) (4.800) (2.809) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma fyrir tekjuskatt skv. (13.593) 22.369 (7.863) 3.394 6.592 árshlutar. -------------------------------------------------------------------------------- Tekjuskattur 2.305 (5.575) 2.519 (814) (620) -------------------------------------------------------------------------------- Afkoma tímabilsins (11.288) 16.794 (5.344) 2.580 5.972 -------------------------------------------------------------------------------- Nánari upplýsingar: Bjarni Bjarnason forstjóri 516 7707 |
|||
|