2013-02-06 17:55:06 CET

2013-02-06 17:56:05 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur janúar 2013


Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 109 þúsund og fjölgaði þeim um
17% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð í millilandafluginu var aukið um
23%. Sætanýtingin var 69,0% og lækkaði um 0,5 prósentustig í mánuðinum á milli
ára. Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúm 21 þúsund í janúar
og fækkaði um 7%.  Dregið hefur úr eftirspurn í innanlandsflugi  og hefur verið
brugðist við með minna framboði.  Framboð í janúar var 12% lægra en í janúar á
síðasta ári og sætanýting var 66,0% samanborið við 63,1% í janúar 2012. Seldir
blokktímar í leiguflugi voru 7% færri en í janúar á síðasta ári.
Fraktflutningar jukust um 10% á milli ára. Seldar gistinætur hjá
Flugleiðahótelunum jukust um 27% á milli ára. Herbergjanýting var 46,6%, eða
0,9 prósentustigum hærri en í janúar 2012. 



MILLILANDAFLUG                    JAN 12       BR. (%)
------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                   109.089           17%
Sætanýting                         69,0%   -0,5 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000)    451.995           23%
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG   JAN 12       BR. (%)
------------------------------------------------------
Fjöldi farþega                    21.458           -7%
Sætanýting                         66,0%    3,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. ('000)        10.082          -12%
LEIGUFLUG                         JAN 12       BR. (%)
------------------------------------------------------
Flugvélanýting                     75,0%  -13,5 %-stig
Seldir blokktímar                  2.704           -7%
FRAKTFLUTNINGAR                   JAN 12       BR. (%)
------------------------------------------------------
Framboðnir tonnkm. (ATK´000)      13.225           11%
Seldir tonnkm. (FTK´000)           7.444           10%
HÓTEL                             JAN 12       BR. (%)
------------------------------------------------------
Framboðnar gistinætur             22.940           24%
Seldar gistinætur                 10.694           27%
Herbergjanýting                    46,6%    0,9 %-stig



Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s:
840-7010