|
|||
2010-10-08 13:46:34 CEST 2010-10-08 13:47:32 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 12 0824Útboð á óverðtryggðum flokki ríkisbréfa, RIKB 12 0824 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 12 0824: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.060 m.kr. að nafnverði. 6 tilboðum var tekið fyrir 1.460 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 99,90 (4,30% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 12. október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 13. október 2010 |
|||
|