2011-08-31 18:31:40 CEST

2011-08-31 18:32:41 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Eignarhaldsfélagið Farice ehf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Farice ehf. fyrir janúar til júní 2011


Árshlutareikningur Farice ehf fyrir janúar til júní 2011, var samþykktur af
stjórn félagsins í dag. 

Helstu niðurstöður, (fjárhæðir eru í evrum):


  -- Rekstrartekjur voru 3,5 milljónir ( 6m 2010: 3,3 milljónir)
  -- Rekstrar- og stjórnunarkostnaður nam 2,8 milljónum (6m 2010: 2,7 milljónir)
  -- Tap tímabilsins, fyrir fjárhagsliði, var 3,2 milljónir (6m 2010: 3,3
     milljónir)



Rekstrarumhverfi og fjárhagur

Fjárhagslegri endurskipulagningu Farice ehf er nú lokið. Á hluthafafundum í
mars og maí 2011 var samþykkt að auka hlutafé félagsins um 8 milljónir evra,
sem íslenska ríkið og Landsvirkjun hafa skráð sig fyrir. Greiðslu aukins
hlutafjár verður lokið í byrjun september, og verður hlutafé félagsins þá 83,5
millj. evra, og eiginfjárhlutfall verður 50,3%. 

Endurskipulagður fjárhagur Farice ehf á að tryggja að félagið geti staðið undir
þeim rekstri sem áætlaður er næstu árin. Tekjur félagsins eru annars vegar af
viðskiptasamningum við almenn fjarskiptafélög og hins vegar af samningum við
gagnaveraiðnaðinn. Árleg aukning fjarskiptaumferðar almennra fjarskiptafélaga
er veruleg, en í áætlunum félagsins er þó gert ráð fyrir að meginvöxturinn
verði á sviði þjónustu við gagnaver og skyldan iðnað. Þá skipta nýir samningar
við lánardrottna um endurgreiðslur langtímalána afar miklu máli hvað varðar
framtíð Farice ehf. 



Frekari upplýsingar veitir:
Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sími: 893 4840
Netfang: gg@farice.is