|
|||
2008-05-26 17:35:00 CEST 2008-06-03 16:41:12 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning um útboð - RIKB 19 0226Fimmtudaginn 29. maí, kl. 14:00, fer fram útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Um er að ræða flokk ríkisbréfa, RIKB 19 0226, sem ber 8,75% vexti sem greiddir eru árlega. Lokagjalddagi bréfsins er 26. febrúar 2019. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 10.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 2. júní 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 19 0226 ISIN IS0000017077 Lokagjalddagi 26.02.2019 Útistandandi fjárhæð 16.330 m kr. Lánstími 11 ár Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir mun Seðlabankinn f.h. ríkissjóðs bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á ávöxtunarkröfu samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 á uppgjörsdegi útboðsins. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er einum degi eftir viðskiptadag (T+1). Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9635. |
|||
|