|
|||
2007-11-22 17:30:00 CET 2007-11-22 17:30:00 CET REGULATED INFORMATION Seðlabanki Íslands - Fyrirtækjafréttir- Útboð ríkisvíxla RIKV 08 0303Fimmtudaginn 29. nóvember kl. 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður á bilinu 2.500 til 5.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 3. desember 2007. Í þessu útboði óskar Seðlabanki Íslands eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisvíxla: Flokkur RIKV 08 0303 Gjalddagi 3. mars 2008 Lánstími 3 mánuðir Ofangreindur flokkur verður skráður í OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi þriðjudaginn 4. desember 2007 og mun viðskiptavakt með flokkinn hefjast sama dag. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson í síma 569 9633 í lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands. |
|||
|