2010-02-04 20:57:21 CET

2010-02-04 20:58:21 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Marel Food Systems hf. - Fyrirtækjafréttir

Marel selur Stork Food & Dairy Systems


Marel hefur komist að samkomulagi við hollenska fjárfestingafélagið Nimbus um
sölu á Food & Dairy Systems deild Stork Food Systems, að undanskilinni
starfsemi hennar á Spáni.

Salan á Food & Dairy Systems, einingu sem starfar utan kjarnastarfsemi
fyrirtækisins, er hluti af áætlun Marel um að leggja áherslu á arðsemi og innri
vöxt í kjarnastarfsemi en hún snýr að vinnslu á fiski, kjöti og kjúklingi, auk
frekari vinnslu. Marel er í fararbroddi á heimsvísu, með um 15%
markaðshlutdeild, í þróun og sölu á háþróuðum búnaði og kerfum fyrir þessar
greinar matvælaiðnaðarins. 

Bókfært verð eignanna hefur verið fært niður sem veldur tapi upp á 16,4
milljónir evra, aðallega vegna afskrifta viðskiptavildar og endurmetinna eigna,
og hefur verið tekið tillit til þess í ársreikningum fyrir 2009. 

Theo Hoen, forstjóri Marel:
„Markmið Marel eftir kaupin á Stork Food Systems í maí 2008 hefur verið að auka
áherslu á kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Starfsemi Stork Food & Dairy Systems
fellur utan þess ramma og hefur einingin því verið skilgreind sem utan
kjarnastarfsemi. 

Stork Food & Dairy Systems hefur gengið í gegnum velheppnaða endurskilgreiningu
og endurnýjun á vörulínum fyrirtækisins, þökk sé starfsfólki og hæfileikaríku
stjórnendateymi. Við erum þess fullviss að fyrirtækið verði í góðum höndum hjá
Nimbus. 

Hvað Marel varðar er þetta mjög jákvætt skref í þá átt að auka enn frekar
áherslu á kjarnastarfsemi og styrkja stöðu okkar sem markaðsleiðtogi.“ 

Starfsemi Stork Food & Dairy Systems snýr aðallega að þróun, framleiðslu og
markaðssetningu á vinnslu- og fyllingarlínum fyrir mjólkurafurðir, ávaxtasafa
og fljótandi matvæli. Árið 2009 stóð einingin (að frátalinni starfsemi hennar á
Spáni) fyrir 11% af tekjum Marel, með veltu upp á 61 milljónir evra. 



Um Marel
Marel er í hópi stærstu útflutningsfyrirtækja Íslands og er í fararbroddi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu á háþróuðum búnaði og kerfum til vinnslu á
fiski, kjöti og kjúklingi. Hjá fyrirtækinu starfa um 3.500 manns um allan heim
og starfrækir það skrifstofur og dótturfyrirtæki í meira en 30 löndum, auk 60
umboðsmanna og dreifingaraðila.