|
|||
2009-10-23 11:24:51 CEST 2009-10-23 11:25:51 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirÍbúðalánasjóður - Niðurstaða útboðs íbúðabréfaÍbúðalánasjóður tilkynnir niðurstöðu í útboði íbúðabréfa, dags. 22. október 2009. Alls bárust gild tilboð að nafnvirði 22,211 milljarðar króna. Ákveðið var að taka tilboðum í eftirtalin íbúðabréf: HFF150224 að nafnvirði 1,220 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,10% HFF150434 að nafnvirði 1,660 milljarður króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,08% HFF150644 að nafnvirði 800 milljónir króna, vegin ávöxtunarkrafa án þóknunar er 4,03% Vegin heildarávöxtunarkrafa tekinna tilboða án þóknunar er 4,07% og 4,09% með þóknun. Uppgjörsdagur viðskiptanna er 30. október 2009. Nánari upplýsingar veita Ívar Ragnarsson sími 569 6990, Herdís Einarsdóttir sími 569 6993 og Soffía Guðmundsdóttir 569 6996. |
|||
|