2017-05-23 12:16:46 CEST

2017-05-23 12:16:46 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Íslandsbanki breytir skipulagi


Í dag tekur skipulag Íslandsbanka breytingum og munu þrjú tekjusvið þjóna
viðskiptavinum; Einstaklingar, Viðskiptabanki og  Fyrirtæki og fjárfestar.
Markmið breytinganna er að sníða skipulag bankans að breyttum þörfum
viðskiptavina og bjóða betri bankaþjónustu.  Breytingarnar munu jafnframt
styrkja stöðu bankans með tilliti til umfangsmikilla breytinga á regluverki og
örrar tækniþróunar.

Hlutverk Einstaklingssviðs er að veita viðskiptavinum alhliða fjármálaþjónustu í
gegnum rafrænar dreifileiðir og nútímalegt útibúanet um land allt. Sigríður
Hrefna Hrafnkelsdóttir er nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka og mun leiða
Einstaklingssvið bankans. Sigríður er lögmaður með MBA próf Copenhagen Business
School. Hún hefur starfað frá árinu 2014 sem framkvæmdastjóri smásölusviðs
Olíuverzlunar Íslands.

Viðskiptabanki þjónustar lítil og meðalstór fyrirtæki í útibúum bankans, þar sem
sérfræðingar í fyrirtækjaþjónustu veita alhliða fjármálaþjónustu. Ergo,
fjármögnunarþjónusta Íslandsbanka er jafnframt hluti af Viðskiptabankasviði.
Framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs er Una Steinsdóttir.

Á sviðinu Fyrirtæki og fjárfestar verður veitt heildstæð fjármálaþjónusta fyrir
fjárfesta og stærstu fyrirtæki landsins sem felst meðal annars í lánveitingum,
miðlun verðbréfa og gjaldeyris, fyrirtækjaráðgjöf, einkabankaþjónustu og sölu
áhættuvarna. Framkvæmdastjóri sviðsins er Vilhelm Már Þorsteinsson.

VÍB eignastýring mun færast yfir á tekjusviðin og í dótturfélag bankans,
Íslandssjóði. Jafnframt verður áherslubreyting á greiningarstarfi en áfram
verður starfandi aðalhagfræðingur sem mun bera ábyrgð á þjóðhagsgreiningu
bankans.

Vegna ofangreindra breytinga mun starfsmönnum fækka um 20.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Á undanförnum árum höfum við verið að einfalda bankaviðskiptin og nú einföldum
við og aðlögum skipulag bankans að breyttu umhverfi. Það er öllum fyrirtækjum
hollt að fara í gegnum skipulagsbreytingar og í því liggja fjölmörg tækifæri.
Með þessum breytingum blæs bankinn til sóknar og treystir undirstöður fyrir
aukna skilvirkni. Við hlökkum til áframhaldandi góðs samstarfs við viðskiptavini
okkar þar sem við munum einblína á enn betri þjónustu í nýju og einfaldara
skipulagi."

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[]