2016-12-02 15:27:52 CET

2016-12-02 15:27:52 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 7. desember 2016


Arion banki verður með útboð á sértryggðum skuldbréfaflokkum þann 7. desember
næstkomandi. 

Boðinn verður til sölu nýr óverðtryggður markflokkur, ARION CB 19 en auk hans
verða verðtryggðu flokkarnir ARION CBI 21 og ARION CBI 29 og óverðtryggði
flokkurinn ARION CB 22 boðnir til sölu. 

Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 verður gefin út í síðasta skipti.

Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka verða útboð sértryggðra skuldabréfa haldin að
jafnaði fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði.  Sjá útgáfuáætlun:
https://www.arionbanki.is/bankinn/fjarfestatengsl/skuldabrefa-fjarfestar/#utgafu
aaetlun 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.