|
|||
![]() |
|||
2015-10-15 16:52:48 CEST 2015-10-15 16:53:52 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Útboð á sértryggðum skuldabréfum föstudaginn 16. októberÍslandsbanki hf. verður með útboð á bæði verðtryggðum og óverðtryggðum sértryggðum skuldabréfum föstudaginn 16. október 2015. Boðinn verður nýr óverðtryggður flokkur til 8 ára, ISLA CB 23 og bætt í 7 ára verðtryggða flokkinn ISLA CBI 22. Samhliða útboðinu mun Íslandsbanki bjóðast til að kaupa bréf í flokkunum ISLA CBI 19, ISLA CBI 20 og ISLA CBI 24 fyrir allt að 240 m.kr. að nafnvirði í hverjum flokki. Eigendur þessara flokka geta boðið bréf sín án þóknunar, hvort sem er í skiptum fyrir ISLA CB 23 eða ISLA CBI 22 eða til beinnar sölu fyrir kl. 14:00 föstudaginn 16. október. Endurkaupin verða með hollensku fyrirkomulagi, þ.e. Íslandsbanki mun taka hæstu kröfu sem boðin er fyrir allt að 240 m.kr. að nafnvirði í hverjum flokki. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [HUG#1959192] |
|||
|