|
|||
2016-05-23 10:57:54 CEST 2016-05-23 10:57:54 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirEndurkaup Seðlabankans á ríkisverðbréfumÍ tengslum við afgreiðslu alþingis á lögum um „meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum, sem tóku gildi gær vill Seðlabankinn taka fram eftirfarandi. Bankinn undirbýr nú gjaldeyrisútboð fyrir aflandskrónueigendur og munu skilmálar útboðsins og dagsetning gerð opinber innan tíðar. Þeir aflandskrónueigendur sem eiga ríkisverðbréf og ríkistryggð skuldabréf munu geta afhent þau Seðlabankanum sem greiðslu fyrir gjaldeyri í útboðinu án undangenginnar sölu bréfanna á markaði. Endurkaupverð bréfanna verður birt í aðdraganda útboðsins og mun taka mið af markaðsverði þeirra.“ |
|||
|