|
|||
![]() |
|||
2015-09-18 23:16:39 CEST 2015-09-18 23:17:41 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. og slitastjórn LBI hf. gera með sér samkomulag um fyrirframgreiðslu skuldabréfaLandsbankinn hf. og slitastjórn LBI hf. hafa í dag, 18. september 2015, náð samkomulagi sem felur meðal annars í sér að Landsbankinn fyrirframgreiði á þessu ári skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum sem eru á gjalddaga í október 2016 og fyrirframgreiði að hluta skuldabréf sem eru á gjalddaga í október 2018. Fjárhæð fyrirframgreiðslunnar nemur að jafnvirði um 47 milljarða króna. Samkomulagið um fyrirframgreiðsluna er háð þeim fyrirvara að Landsbankanum takist að fjármagna fyrirframgreiðsluna á kjörum sem Landsbankinn telur ásættanleg. Samkomulagið er gert með hliðsjón af tillögum tiltekinna kröfuhafa LBI sem settar voru fram í tengslum við áætlun um losun fjármagnshafta og kynntar voru á vefsíðu fjármála- og efnahagsráðuneytisins í júní síðastliðnum. Til þess að vinna að framangreindri endurfjármögnun og til þess að breikka og styrkja fjármögnun bankans hefur Landsbankinn ráðið fjárfestingarbankana Citi, Deutsche Bank og J.P. Morgan til þess að skipuleggja fjárfestafundi í Evrópu sem hefjast mánudaginn 21. september næstkomandi. Útgáfa á skuldabréfum í evrum kann að fylgja í kjölfarið, háð markaðsaðstæðum. Kynningarefni á ensku vegna fyrirhugaðra fjárfestafunda er aðgengilegt á vef Landsbankans á slóðinni: https://bankinn.landsbankinn.is/fjarfestar/ Nánari upplýsingar Kristján Kristjánsson, pr@landsbankinn.is 410 4011 eða 899 9352 |
|||
|