|
|||
![]() |
|||
2014-08-29 15:23:48 CEST 2014-08-29 15:24:49 CEST REGULATED INFORMATION Reitir II ehf. - ÁrsreikningurAfkoma Reita II ehf. á fyrri árshelmingi 2014Hagnaður Reita II ehf. á fyrri árshelmingi 2014 nam 63 milljónum króna samanborið við 100 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins á tímabilinu nam 598 milljónum króna samanborið við 574 milljónir króna árið áður. Í lok júní 2014 var eigið fé Reita II 1.235 milljónir króna en það var 72 milljónir króna á sama tíma árið áður. Væntingar stjórnar og stjórnenda eru þær að eigið fé félagsins verði aukið umtalsvert samhliða endurfjármögnun og sölu á nýju hlutafé í móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi. Lykiltölur: -- Heildareignir námu 22.417 milljónum króna þann 30. júní 2014. -- Eigið fé félagsins nam 1.235 milljónum króna á sama tíma. -- Rekstrartekjur fyrri árshelmings námu 867 milljónum króna samanborið við 832 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Reitir II á og rekur 18 fasteignir á Íslandi og er félagið eitt af 8 dótturfélögum alfarið eigu Reita fasteignafélags. Upplýsingar um afkomu móðurfélagsins, Reita fasteignafélags, má finna á www.reitir.is. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson fjármálastjóri í síma 575 9000 eða 669 4416 (einar@reitir.is). |
|||
|