2008-12-09 18:10:20 CET

2008-12-09 18:11:11 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Yfirlýsing frá Bakkavör Group - Innstæða og fjármögnun félagsins


Umfjöllun fjölmiðla undanfarið varðandi matvælaiðnaðinn sem Bakkavör Group
starfar í hefur komið af stað vangaveltum um stöðu Bakkavör Group og þá
sérstaklega fjármögnun félagsins. Í því ljósi og sem viðbrögð við umfjöllun
fjölmiðla vill stjórn Bakkavör Group (Bakkavör) koma eftirfarandi á framfæri: 

Innstæða og fjármögnun félagsins
Eins og tilkynnt var í 9 mánaða uppgjöri félagsins í október síðastliðnum þá á
félagið umtalsverða innstæðu hjá Nýja Kaupþingi banka. Innstæðan er að fullu
tryggð af Tryggingasjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi auk þess að
forsætisráðuneytið og Seðlabanki Íslands hafa staðfest að svo sé. 

Félagið hefur getað leyst út hluta innstæðunnar en stjórn félagsins er þó
fullviss að þær 140 milljónir punda sem eftir eru fáist leystar út að fullu í
pundum þó ekki sé ljóst hvenær það verði. 

Í ljósi þessa hefur Bakkavör haft frumkvæði að viðræðum við aðila að alþjóðlegu
sambankaláni félagsins og hefur Bakkavör fengið ráðgjafa félagsins til langs
tíma, NM Rothschild & Sons Limited (NMR), til þess að vera ráðgefandi í þeim
viðræðum. 

Skuldabréfaflokkar Bakkavarar
Jafnframt á Bakkavör í viðræðum við eigendur skuldabréfa félagsins sem gefin
voru út á árunum 2003 til 2005 í þeim tilgangi að framlengja gjalddaga
bréfanna. 


Grunnrekstur Bakkavarar er sterkur. Rekstur félagsins er arðbær, sjóðsmyndun
sterk og félagið nýtur góðra tengsla við bæði viðskiptavini og birgja og eru
viðskiptakjör milli aðila eðlileg. 

Þar sem félagið hefur á undanförum árum notið góðs stuðnings fjármálastofnana
og eigenda skuldabréfa félagsins þá er stjórn félagsins þess fullviss að
viðræðurnar muni skila góðum árangri. 

Félagið mun nú birta niðurstöður ársuppgjörs 12. mars 2009 þar sem nánari skil
verða gerð á stöðu ofangreindra mála. 


Nánari upplýsingar:
Ísland:
Snorri Guðmundsson	
Fjárfestatengsl
Bakkavör Group hf
Sími: +354 550 9710
Farsími: +354 858 9710	
Tölvupóstur: snorri@bakkavor.com
Heimasíða: www.bakkavor.com

Utan Íslands:
Fiona Tooley
Citigate Dewe Rogerson
Farsími: +44 (0) 7785 703523
Sími : +44 (0)121 455 8370
Tölvupóstur: fiona.tooley@citigatedr.co.uk