2007-12-17 17:00:52 CET

2007-12-19 17:33:52 CET


REGULATED INFORMATION

365 hf. - Fyrirtækjafréttir

Samningur við Saga Capital um viðskiptavakt


365 hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að Saga Capital annist
viðskiptavakt með útgefnum hlutabréfum 365 sem skráð eru í Kauphöll Íslands.
Samningurinn tekur gildi frá og með 18. desember 2007. 

Í samningi Saga Capital við 365 skuldbindur bankinn sig til að setja daglega
fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf 365 að lágmarki ein milljón að nafnverði á
verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti. Tilboðin eru sett fram í
viðskiptakerfi Kauphallar Íslands, áður en markaður er opnaður og skulu ekki
gilda lengur en innan dagsins. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki
vera meiri en 1,25% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%.
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 100 milljónir að
markaðsvirði. Verði tilboði Saga Capital tekið eða það fellt niður, skal Saga
Capital setja fram nýtt tilboð eins fljótt og mögulegt er, þar til
hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag hefur verið náð. 

Samingur við Kaupþing sem hefur séð um viðskiptavakt félagsins hefur verið sagt
upp og miðast uppsögnin við lok dags 17. desember 2007.