2016-11-02 22:48:02 CET

2016-11-02 22:48:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eimskipafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

Viðauki: Eimskip undirritar samning um kaup á flutningafyrirtækinu Nor Lines


Í tilefni af fréttatilkynningu frá Eimskip dagsettri 2. nóvember vill félagið
árétta eftirfarandi: 

Eimskip hefur undirritað samning um kaup á norska flutningafyrirtækinu Nor
Lines. Kaupin á Nor Lines falla vel að stefnu Eimskips um fjárfestingar í
kjarnastarfsemi og fela ekki í sér yfirtöku á miklum rekstrarfjármunum.
Endanlegt kaupverð er háð breytingum sem taka mið af ársreikningi Nor Lines
fyrir árið 2016. Áætlað er að kaupverðið nemi 15 milljónum evra, en það getur
lækkað eða hækkað til samræmis við rekstrarafkomu Nor Lines fyrir árið 2016. 

Eins og fram kom í fyrri tilkynningu hefur rekstur Nor Lines verið erfiður á
undanförnum árum. Eimskip sér tækifæri í að endurskipuleggja reksturinn og
hefur tryggt, sem hluta af kaupunum, hagstæðari samninga um rekstur
siglingakerfis Nor Lines. Að auki mun nást fram hagræðing með samþættingu við
siglingakerfi Eimskips í Noregi. Markmið Eimskips er að ná 6-8% EBITDA framlegð
eins og í öðrum sambærilegum rekstri félagsins sem ekki hefur á að skipa miklum
rekstrarfjármunum. 

Fram kom í fyrri tilkynningu að Eimskip muni til viðbótar við það sem að ofan
greinir kaupa eitt af þeim skipum sem eru í rekstri Nor Lines (Nordkinn) og
nemur kaupverð skipsins 8 milljónum evra. Skipið og tvö af fjórum leiguskipum
félagsins (systurskipin Silver River og Silver Lake) voru smíðuð af Eimskip í
Noregi og voru í þjónustu félagsins til ársins 2009. 

Með fyrirvara um samþykki norskra samkeppnisyfirvalda er gert ráð fyrir að
endanleg niðurstaða um kaupin liggi fyrir á fyrsta ársfjórðungi 2017.