|
||||||||||||||||||||||||||
2022-10-04 18:20:05 CEST 2022-10-04 18:20:05 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf.: Landsbankinn semur um viðskiptavakt með sértryggð skuldabréfLandsbankinn hf. hefur undirritað samninga við Arion banka hf., Íslandsbanka hf. og Kviku banka hf. um viðskiptavakt á eftirmarkaði með sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Skuldabréfin eru skráð á Nasdaq Iceland og taka skyldur viðskiptavaka samkvæmt samningi gildi þann 5. október 2022. Viðskiptavakar munu fyrir opnun markaða dag hvern setja fram kaup- og sölutilboð í sértryggð skuldabréf útgefin af Landsbankanum. Lágmarksfjárhæð tilboða eru sem hér segir:
Lágmarksfjárhæð tilboða í LBANK CBI 28 miðast við 40 m.kr. að nafnverði. Skyldur einstakra viðskiptavaka falla niður á tilteknum viðskiptadegi ef viðskiptavaki hefur átt viðskipti (tilgreind „AUTO“) með sértryggð skuldabréf fyrir 500 m. kr. að nafnverði samanlagt í þeim flokkum sem samningurinn nær til. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og tekur mið af árafjölda til lokagjalddaga sértryggðu skuldabréfanna, á hverjum tíma, í samræmi við eftirfarandi töflu:
Verðtryggðir flokkar sem eru ótækir til frekari útgáfu vegna reglna Seðlabanka Íslands nr. 492/2001 um verðtryggingu sparifjár og lánsfjár, með síðari breytingum, eru undanþegnir ofangreindum kvöðum um hámarksmun kaup- og sölutilboða. Frá gildistöku samninga um viðskiptavakt geta viðskiptavakar fengið tímabundin bréfalán í flokki þeirra skuldabréfa sem samningurinn tekur til. Hámarkslán til einstakra viðskiptavaka er 320 m. kr. að nafnverði í hverjum markflokki og flokkum sem áður hafa verið skilgreindir sem markflokkar. |
||||||||||||||||||||||||||
|