|
|||
![]() |
|||
2016-09-26 10:58:23 CEST 2016-09-26 10:58:23 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. : Útboð sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn mun halda lokað útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 27. september kl. 15:00. Boðinn verður til sölu nýr verðtryggður markflokkur, LBANK CBI 28 en auk hans verður verðtryggði flokkurinn LBANK CBI 22 og óverðtryggðu flokkarnir LBANK CB 19 og LBANK CB 17 boðnir til sölu. Á uppgjörsdegi útboðsins taka nýir samningar um viðskiptavakt gildi sem tilkynnt var um í fréttaveitu Nasdaq Iceland þann 21. september 2016. Viðskiptavökum með sértryggð skuldabréf bankans fjölgar í þrjá þar sem heildarfjárhæð kaup- og sölutilboða í hvorn markflokk fyrir sig eykst í 240 m. kr. en verður 180 m. kr. í nýjum markflokki þar til hann hefur náð 10 ma. kr. stærð. Verðbréfamiðlun Landsbankans hefur umsjón með útboðinu. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í síma 410-7330 eða með tölvupósti, verdbrefamidlun@landsbankinn.is. [] |
|||
|