2016-09-26 11:09:12 CEST

2016-09-26 11:09:12 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs ágúst 2016


Vanskil lögaðila lækka umtalsvert

Vanskil lögaðila hafa dregist verulega saman á undanförnum mánuðum í tengslum
við fjárhagslega endurskipulagningu lögaðila. Í lok ágúst nam fjárhæð vanskila
útlána til lögaðila 583 milljónum króna og var undirliggjandi lánavirði 2,5
milljarðar króna eða um 1,8% útlána sjóðsins til lögaðila. Til samanburðar var
undirliggjandi lánavirði vanskila útlána til lögaðila 16,5 milljarðar í upphafi
árs, það er 14 milljarða króna lækkun á átta mánuðum. Vanskil einstaklinga
standa í stað í ágúst eftir samfellda lækkun frá júlí 2015. Vanskil ná samtals
til 3,5% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í ársbyrjun var 6,93%. 

Sala íbúða í eigu sjóðsins gengur vel

Sjóðurinn seldi samtals 41 eign í mánuðinum.  Til viðbótar þeim eignum sem
seldar voru hefur Íbúðalánasjóður samþykkt kauptilboð í 86 eignir og vinna nú
tilboðsgjafar að fjármögnun þeirra. Í lok mánaðar átti Íbúðalánasjóður 772
íbúðir samanborið við 1.348 í ársbyrjun. Sjóðurinn hefur selt 737 eignir á
árinu eða 20% fleiri eignir en á sama tímabili árið 2015 þegar seldar voru 618
eignir. 

Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu