|
|||
2016-09-30 15:48:25 CEST 2016-09-30 15:48:25 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - FyrirtækjafréttirSamið um breytingu á afborgunum skuldabréfsReykjavík, 2016-09-30 15:47 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Orkuveita Reykjavíkur og Magma Energy Sweden, móðurfélag HS Orku, hafa náð samkomulagi, með fyrirvara um staðfestingu stjórnar, um breyttar afborganir á skuldabréfi sem gjaldfalla átti í einu lagi í desember 2016. Uppreiknað virði bréfsins er um 72 milljónir bandaríkjadala. Samkvæmt samkomulaginu verður helmingur fjárhæðar bréfsins greiddur við staðfestingu þessa samkomulags og helmingur á fyrri hluta árs 2018. Hlutabréf í HS Orku munu áfram verða að veði fyrir greiðslu og vextir munu hækka í 5%. Breytt greiðslutilhögun kemur til skoðunar hjá Seðlabanka Íslands. |
|||
|