2016-11-09 09:36:27 CET

2016-11-09 09:36:27 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Árshlutareikningar

Islandsbanki hf. : Afkoma fyrstu níu mánaða ársins 2016


HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU FYRSTU 9 MÁNAÐA ÁRSINS (9M16)

  * Hagnaður bankans eftir skatta var 15,6 ma. kr. á fyrstu níu mánuðum ársins,
    samanborið við 16,7 ma. kr. á sama tímabili 2015. Afkoman á tímabilinu
    skýrist af sterkum grunntekjum og einskiptishagnaðar vegna sölu Borgunar á
    hlutabréfum í Visa Europe, en skýrist af hagnaði vegna virðisbreytinga
    útlána á sama tímabili 2015.
  * Arðsemi eigin fjár var 10,3% samanborið við 11,9% á sama tímabili 2015.
  * Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 11,2 ma. kr., samanborið við 11,8 ma.
    kr. á 9M15. Sé miðað við 15% eiginfjárþátt 1 (CET1), var arðsemi eigin fjár
    af reglulegri starfsemi 10,4% samanborið við 12,3% á sama tímabili 2015.
  * Hreinar vaxtatekjur voru 23,7 ma. kr. (9M15: 21,0 ma. kr.) sem er  aukning
    um 13% og skýrist af háu vaxtaumhverfi og auknu eigin fé. Vaxtamunur var
    3,0% (9M15: 2,9%).
  * Hreinar þóknanatekjur voru 9,9 ma. kr. sem er á pari við sama tímabil 2015
    eða 9,9 ma. kr.
  * Um 1,2 milljarða einskiptiskostnaður var vegna skemmda á núverandi
    höfuðstöðvum bankans á Kirkjusandi.
  * Kostnaðarhlutfall var 56,0%  (9M15: 55,6%), að undanskildum sérstökum skatti
    á fjármálafyrirtæki og einskiptiskostnaði.
  * Heildareignir voru 1.068 ma. kr. í lok tímabilsins (júní16: 1.030 ma. kr.),
    en lán til viðskiptavina og lausafjáreignir eru samtals 95% af
    heildarefnahagsreikningi.
  * Útlán til viðskiptavina jukust um 2,8% frá áramótum eða í 684,2 ma. kr .
    Aukningin dreifist vel á mismunandi  útlánaeiningar bankans, en styrking
    krónunar hafði nokkur áhrif til lækkunar á lánasafni.
  * Hlutfall lána með vanskil umfram 90 daga og virðisrýrnun var 2,3% (júní16:
    2,5%).
  * Innlán frá viðskiptavinum lækkuðu um 6,8% og voru 553 ma. kr. í lok
    tímabilsins sem er í línu við væntingar tengdum nauðasamningum slitabúa og
    gjaldeyrisútboðum.
  * Eiginfjárhlutfall og eiginfjárþáttur 1 (CET1) var 27,8%, en 138 milljón evra
    víkjandi skuldabréf var endurgreitt  í september.
  * Lausafjárstaða bankans er mjög traust og umfram kröfur eftirlitsaðila og
    innri viðmið. Í lok september 2016 var lausafjárþekjuhlutfallið (LCR) 195%
    (júní16: 173%) og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) var 126% (júní16: 117%).
  * Vogunarhlutfall (e. leverage ratio) var 17,7% við lok tímabilsins samanborið
    við 18,3% í lok júní 2016 sem telst afar hóflegt.
  * Bankinn hefur gefið út þrjú skuldabréf í erlendri mynt á tímabilinu. Í ágúst
    gaf bankinn út 500 milljón evra skuldabréf (ISK 65 ma. kr.) til fjögurra ára
    á 1,75% föstum vöxtum, eða sem samsvarar 200 punkta álagi yfir
    millibankavexti. Í janúar var gefið út 35 milljónir dollara skuldabréf og
    útistandandi skuldabréfaútgáfa stækkuð um 75 milljón evra í maí.
  * S&P hækkaði lánshæfiseinkunn Íslandsbanka í BBB/A-2 með jákvæðum horfum í
    október 2016. Í apríl staðfesti Fitch lánshæfismatið BBB-/F3 með stöðugum
    horfum. Íslandsbanki er eini íslenski bankinn með lánshæfismat í
    fjárfestingarflokki frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum.

HELSTU ATRIÐI Í AFKOMU ÞRIÐJA ÁRSHLUTA (3Q16)

  * Hagnaður bankans eftir skatta var 2,5 ma. kr. á þriðja árshluta 2016 (3F15:
    5,9 ma. kr.)
  * Arðsemi  eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárþátt 1
    (CET1) var 8,7% á fjórðungnum (3F15: 11,1%)
  * Hreinar vaxtatekjur voru 7,8 ma. kr. (3F15: 7,5 ma. kr.)
  * Hreinar þóknanatekjur voru 3,2 ma. kr. (3F15: 3,5 ma. kr.)



Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Þriðji ársfjórðungur ársins 2016 var mjög viðburðaríkur í rekstri Íslandsbanka,
þá sér í lagi á fjármögnunarhliðinni og í ytra umhverfi hans.

Skuldastaða íslenska ríkisins, fyrirtækja og heimila í landinu hefur stórbatnað
á undanförnum árum og lög um skref til afléttingu hafta hafa verið samþykkt. Þá
gaf bankinn nýlega út 500 milljón evra skuldabréf og er nú að fullu fjármagnaður
á markaði. Meira en tvöföld umframeftirspurn var eftir skuldabréfinu og hefur
álag farið lækkandi á eftirmarkaði. Hækkun á lánshæfiseinkunn S&P í BBB/A-2 með
jákvæðum horfum í október er í takt við þá þessa hagstæðu þróun í íslenska
hagkerfinu og fjármálageiranum.

Sterk staða á markaði heldur áfram að skila bankanum góðum undirliggjandi
rekstri og arðsemi. Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins var 15,6 ma. kr. sem
skilaði 10,3% arðsemi eiginfjár en eins og áður hefur fram komið, höfðu
einskiptisliðir jákvæð áhrif á afkomuna á tímabilinu. Afkoma af grunnrekstri var
11,2 milljarðar, eða 10,4% arðsemi eigin fjár. Vaxtatekjur jukust um 13% frá
fyrra ári og stafar það fyrst og fremst af hærra vaxtaumhverfi og auknu eigin
fé. Samkeppni í útlánum fer harðnandi, sem samhliða sívaxandi skattlagningu á
fjármálakerfið mun gæta í arðsemi bankans til lengri tíma.

Vogunarhlutfall er áfram lágt í 17,7%. Eiginfjárhlutföll standa vel og einkar
sterk lausafjárhlutföll gera bankann vel í stakk búinn til að takast á við
möguleg áhrif vegna frekari afléttingu hafta og frekari sóknar."


FJÁRFESTATENGSL - SÍMAFUNDUR Á ENSKU

Á miðvikudaginn 9. nóvember verður markaðsaðilum boðið upp á símafund kl. 13.00
á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu
bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á
ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til
skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér:
http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.



Nánari upplýsingar veita:

  *  Fjárfestatengill - Tinna Molphy,  tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is
    og í síma 440 4005.


[]