2007-12-11 10:24:27 CET

2007-12-11 10:24:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

FL Group gefur út nýtt hlutafé í desember


FL Group (FL) hyggst auka hlutafé félagsins með lokuðu útboði til fjárfesta og
er stefnt að því að selja hlutafé fyrir allt að 10 milljarða króna. Tilgangur
útboðsins er að styrkja eiginfjárgrunn félagsins og breikka hluthafahópinn í
samræmi við tilkynningu félagsins frá 4. desember síðastliðnum um kaup á
eignarhlutum í fasteignafélögum og -sjóðum í Evrópu. 

Stærð útboðs
FL hyggst bjóða nýtt hlutafé fyrir allt að 10 milljarða króna. Hver hlutur
verður seldur á 14,7 krónur og er því um að ræða allt að 680.272.109 nýja
hluti, sem jafngildir um 7,36% aukningu á hlutafé félagsins. Verði eftirspurn í
útboðinu verulega umfram 10 milljarða króna, verður hlutafjárútboðið stækkað um
allt að 5 milljarða króna. Í því skyni verða gefnir út allt að 239.727.891 nýir
hlutir til viðbótar og að auki seldir allt að 100.408.163 hlutir sem eru í eigu
félagsins. 

Áskriftir	
Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf. (Kaupþings) hefur umsjón með útboðinu.
Hlutabréfamiðlun Kaupþings mun taka við áskriftum til kl. 4 síðdegis
föstudaginn 14. desember 2007. Lágmarksandvirði hverrar áskriftar og kaupa er 5
milljónir króna. 

Niðurstöður
Stjórn FL mun í samráði við Kaupþing úthluta seldum hlutum og áskilur sér rétt
til að hafna einstökum áskriftum að hluta til eða öllu leyti. Tilkynnt verður
um niðurstöður útboðsins eigi síðar en kl. 9 árdegis mánudaginn 17. desember
2007. 

Viðskipti
Gert er ráð fyrir að nýju hlutirnir verði teknir til viðskipta í OMX Nordic
Exchange Iceland hf. (OMX ICE) eigi síðar en fimmtudaginn 27. desember 2007. 

Uppgjör
Fjárfestar skulu greiða kaupverð hlutanna eigi síðar en kl. 4 síðdegis
föstudaginn 4. janúar 2008. Frá og með fimmtudeginum 27. desember 2007 verða
hinir nýju hlutir afhentir þeim kaupendum sem greitt hafa kaupverðið. 

Heimild stjórnar
Stjórn FL mun nýta hluta heimildar í b-lið 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins
til að hækka hlutaféð. 

Fyrirvari	
Útboðið og hlutafjárhækkunin eru háð því að á hluthafafundi, sem boðaður er 14.
desember 2007, samþykki hluthafar FL útgáfu allt að 3.659.265.291 nýrra hluta,
á genginu 14,7 krónur á hlut, til Baugs Group hf. og dótturfélaga (Baugs) í
skiptum fyrir hlutafé í tilteknum fasteignafélögum og -sjóðum. Ef selt verður
hlutafé fyrir meira en 10 milljarða króna í útboðinu munu útgefnir hlutir til
Baugs skerðast sem því nemur og samsvarandi fjárhæð, allt að 5 milljarðar
króna, greidd Baugi í peningum. 


Forgangsréttarútboð á fyrsta ársfjórðungi 2008

FL hyggst á fyrsta ársfjórðungi 2008 selja nýtt hlutafé í forgangsréttarútboði
til hluthafa félagsins fyrir allt að 3 milljarða króna. Hver hlutur verður
seldur á 14,7 krónur og verða því útgefnir allt að 204.081.633 nýir hlutir í
kjölfar forgangsréttarútboðsins. Baugur hefur skuldbundið sig til að falla frá
forgangsrétti sínum í útboðinu. Í kjölfar ársuppgjörs félagsins, sem væntanlegt
er í byrjun febrúar 2007, verður tilkynnt um þann dag sem forgangsrétturinn
miðast við (e. record date). 


Nánari upplýsingar veita:

Halldór Kristmannsson
Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs FL Group 
Sími: +354 591 4400
Tölvupóstfang: halldor@flgroup.is

Þórólfur Jónsson
Framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings banka hf.
Sími +354 444 6000
Tölvupóstfang:  thorolfur.jonsson@kaupthing.com 

Frosti Reyr Rúnarsson
Forstöðumaður hlutabréfamiðlunar Kaupþings banka hf.
Sími: +354 444 6000
Tölvupóstfang: frosti.runarsson@kaupthing.com 


Um FL Group

FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með áherslu á þrjú fjárfestingasvið,
FIG, Private Equity og Capital Markets.  FIG hefur umsjón með
áhrifafjárfestingum í fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum.  Private Equity
heldur utan um óskráðar eignir ásamt skráðum eignum sem falla að
fjárfestingarstefnu félagsins.  Capital Markets svið félagsins hefur umsjón með
markaðsviðskiptum sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu-
og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. Höfuðstöðvar FL Group eru í
Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofu í Lundúnum. FL Group fjárfestir í
félögum um allan heim en leggur sérstaka áherslu á fjárfestingar í Evrópu. FL
Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar
félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. 

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is.