|
|||
![]() |
|||
2014-07-18 18:44:53 CEST 2014-07-18 18:45:54 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirStandard & Poor‘s breytir horfum um lánshæfi Ríkissjóðs ÍslandsStandard & Poor‘s breytir stöðugum horfum um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands í jákvæðar horfur vegna kröftugs hagvaxtar og batnandi stöðu opinberra fjármála. Lánshæfiseinkunnirnar BBB-/A-3 eru staðfestar Hinn 18. júlí ,2014, hefur matsfyrirtækið Standard & Poor‘s breytt horfunum um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs var staðfest BBB- fyrir langtímaskuldbindingar og A-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Helstu niðurstöður úr skýrslu S&P: · S&P reiknar með að hagvöxtur á landinu verði að meðaltali nálægt þremur prósentum árin 2014-2017, þar sem aukin einkaneysla er drifkraftur. · Áætlað er að hrein skuldastaða hins opinbera lækki úr 71% af VLF 2014 í 61% árið 2017. · Endurskoðaðar horfur endurspegla það mat að meira en þriðjungslíkur séu á því að lánshæfiseinkunn verði hækkuð innan 24 mánaða ef áframhald verður á öflugum og víðtækum hagvexti ásamt frekari bata í ríkisfjármálum. |
|||
|